Bylgja's profileSú eina sannaPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
Sú eina sanna |
|||||
|
|
March 02 Fyrstu skilJæja þá er ég búin að senda frá mér fyrstu skil á lokaritgerðinni
Annars er lítð að frétta hjá mér, var að skila inn einu hópaverkefni áðan en en samt í þremr hópaverkefnum ennþá. Er samt bara í þremur fögum. Nýjasta verkefnið er typpaverkefni. Erum við að stúdera typpi og reðursafnið á Húsavík
Best að fara gera eitthvað af viti núna (eins og að veiða) February 05 Nýtt ár.....Þá er komið 2009....veit ekki alveg hvert 2008 fór en það leið allt of fljótt. Skrýtið að það sé komið 2009, því þann 13 júní næstkomandi þá mun ég útskrifast úr Háskólanum á Akureyri með BS í viðskiptafræði
Ég setti mér fimm ára plan ekki fyrir svo löngu, og það er að klárast þá....vá hvað tíminn hefur hlaupið frá mér. Reyndar, fyrir þessum fimm árum, þá átti ég ekki von á að hafa gert allt það sem ég er búin að gera og hitt allt þetta frábæra fólk sem ég er að umgangast dags daglega
Á þessum fimm árum er ég búin að kaupa mér bíl, útskrifast sem stúdent, fara til Sviss, fara til London, byrja í háskóla, fara til York með systrunum, fara til Dublin á æfingu með REM með viðkomu í London og York, fara í road trip um Bretland og Skotland á bílaleigubíl með tjald í skottinu og flytja. Þetta er nokkuð gott á ekki lengri tíma
Annar er það að frétta að ég er byrjuð á lokaritgerðinni minni. Sit uppi í skóla nokkurn vegin á hverjum virkum degi að lesa og skrifa. Er nokkuð sátt við sjálfa mig með að vera byrjuð :) Ég á að skila ritgerðinni upp úr miðjum apríl og svo er ég í tveimur prófum þann 29 apríl....og þá er bara bið eftir útskrift... November 28 Fluttt..Þá er komin sá tími á árinu að ég er flutt í háskólann á Akureyri. Prófin eru byrjuð, búin með eitt munnlegt og á fimm skrifleg eftir. Verð svo komin í jólafrí um hádegi þann 12 desember
Besta að fara halda áfram að lesa....og hlusta á jólalög November 10 Nenni ekki að læra núna...best að bloggaJæja...hef haft mikið að gera í skólanum og fleira þess vegna hef ég ekki nennt að blogga. En núna sit ég í tíma í Fjölmenningu og er alls ekki að nenna hlusta af alefli. Þannig að ég tel það vera best að koma með smá um hvað ég hef verið að gera frá því ég bloggaði seinast almennilega í vor.
Sumarið byrjaði á að fara með Júlíu til Glasgow og hitta Fríðu og vorum þar í eina nótt. Þaðan fórum við til Edinborgar og vorum tvær nætur. Skoðuðum okkur vel um og fórum til dæmis í dýragarðnn
Vorum svo í London í 3 nætur og ýmislegt brallað á meðan. Fórum í te til drottningarinnar
Besta að hafa þetta blogg ekki lengra kem með framhald af árinu bráðum. Annars eru fleiri myndir í albúminu. August 27 SkólinnÞá er skólinn byrjaður. Sit núna í tíma í skattskilum. Þannig að eftir þessa önn þá skal ég gera skattsýrslurnar fyrir ykkur gegn "vægu"gjaldi, en mun samt ekki taka ábyrgð á henni.
Verð í sex fögum núna þessa önn og mér líst rosa vel á fimma af þeim, en það sjötta verður lala en ég mun taka það í fjarnámi. Setti inn nokkrar myndir frá ferðinni í umar. Blogg um sumarið kemur bráðum og mun ég lofa að það verður spennandi lesning.
Best að fara fylgjast með.....seinna |
|
|||
|
|